Í Austurkoti er stunduð hrossarækt og erum við að sýna tvö til sex hross á ári í kynbótasýningum. Við temjum og þjálfum hross árið um kring, mest frá okkur sjálfum því aðal lifibrauð okkar er hestasala. Kennsla er jafnframt stór þáttur í starfseminni enda bæði menntaðir þjálfarar og reiðkennarar. Við komum jafnframt að landsliðsmálum en Páll Bragi var liðsstjóri íslenska landsliðsins í fjögur ár og Hugrún hefur starfað við hlið hans undanfarin ár.
Hjá okkur er mikill metnaður lagður í hvern hest og að hann fái góða og vandaða tamningu, hvort sem hlutverk hans verður innan vallar eða utan.
Við þjálfum hross fyrir keppnir, hestasýningar og kynbótasýningar auk venjubundinnar þjálfunar.
Við getum aðstoðað þig við að finna rétta hestinn.
Reiðkennsla og þjálfun knapa á öllum stigum, einstaklinga og teymi, fyrir keppnir og almenna reiðmennsku.
Okkar markmið er að rækta úrvals hross og er metnaður lagður í hvert hross.
Okkar markmið eru skýr. Við fjölskyldan viljum búa í sveit þar sem allir geta blómstrað, hvort sem er börnin okkar, við sjálf eða hrossin.
Við viljum vanda til verka og rækta góð hross ásamt því að temja vel, þannig að þeir sem eignast hest frá okkur upplifi hversu stórkostlegt það er að ríða um á vel tömdum gæðingi.
Við viljum rækta framfalleg hross með samvinnuþýða lund og mikla getu.
Páll á keppnisvellinum.
Bæði höfum við komið að þjálfun landsliða, bæði þess íslenska og annarra.
Stór þáttur í starfseminni í Austurkoti er kennsla bæði heima og erlendis.
Úr okkar ræktun hafa komið mörg úrvals ræktunar og keppnishross sem gaman er að fylgjast með þegar þau blómstra hjá nýjum eigendum.
Félagsstörf í hestamennsku hafa verið stór þáttur í okkar lífi um langan tíma og höfum við komið við sögu á flestum sviðum hestamennsku á íslandi.